Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. mars 2021 14:08
Magnús Már Einarsson
Cavani snýr aftur á morgun
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, reiknar með að Edinson Cavani snúi aftur í leiknum gegn Crystal Palace annað kvöld.

Cavani hefur misst af síðustu fjórum leikjum Manchester United vegna meiðsla.

„Edinson æfði í dag og það er gott. Vonandi verður hann í lagi eftir æfinguna. Vonandi ferðast hann með liðinu í leikinn," sagði Solskjær.

„Við lítum ágætlega út. Það eru nokkrir tæpir fyrir leikinn og við þurfum að gefa þeim eins mikinn tíma og hægt er," bætti Solskjær við.

Solskjær vildi ekki greina frá því hvaða leikmenn eru tæpir en hann staðfesti að Paul Pogba er ennþá á meiðslalistanum.
Athugasemdir
banner
banner