Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. júlí 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM kvenna í dag - England eða Bandaríkin í úrslit
Mynd: Getty Images
Það ræðst í dag hvort England eða Bandaríkin fari í úrslitaleikinn á Heimsmeistaramóti kvenna.

Mikil stemning hefur myndast í Englandi vegna árangur Englands í keppninni hingað til. Lærimeyjar Phil Neville unnu 3-0 sigur á Noregi í undanúrslitunum.

Mótherji Englands í dag eru þrífaldir Heimsmeistarar Bandaríkjanna, sem eru ríkjandi meistarar. Bandaríkin slógu út gestgjafa Frakklands í undanúrslitunum.

Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Leikur dagsins:
19:00 England - Bandaríkin (RÚV)
Athugasemdir
banner
banner
banner