Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   mið 03. júlí 2013 22:16
Brynjar Ingi Erluson
Heimir Guðjóns: Vitum að Kristján er frábær fótboltamaður
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH í Pepsi-deildinni, var ánægður með 2-1 sigur liðsins á Fram í kvöld, en liðið er nú tveimur stigum á eftir KR sem situr á toppnum.

,,Mér fannst við sýna góðan karakter og héldum alltaf áfram og náðum að klára þessi þrjú stig," sagði Heimir.

,,Mér fannst þessi leikur af hálfu FH að mörgu leyti mjög góður. Boltinn gekk betur á milli manna en áður. Vandamálið í dag, sérstaklega í fyrri hálfleik, var að við vorum að missa boltann á slæmum stöðum og hleypa þeim í hraðar sóknir en í seinni hálfleik í stöðunni 1-0 þá fengum við möguleika á því að komast í þægilega stöðu en náðum ekki að nýta það."

,,Ég held að fyrri hálfleikurinn á móti Val var eins og allir sáu ekki góður, en mér fannst við laga megnið af því í dag og mér fannst hugarfarið gott hjá FH-liðinu og menn vildu sigur."

Kristján Gauti Emilsson kom inn í byrjunarliðið hjá FH, en hann hefur átt við mikil meiðsli að stríða frá því hann kom til félagsins frá Liverpool. Heimir var ánægður með frammistöðu Kristjáns í kvöld.

,,Mér fannst Kristján standa sig vel og hann gerði það sem við báðum hann um að gera, var gríðarlega duglegur og við vitum það að hann er frábær fótboltamaður og hann á bara eftir að verða betri."

Einar Karl Ingvarsson var virkilega öflugur í liði FH í fyrra, en í ár hefur hann ekki spilað mikið. Hann fékk þrjár mínútur í kvöld, en Heimir segir að ástæða þess sé að mikil samkeppni sé innan hópsins.

,,Það er mikil samkeppni um stöðu í FH-liðinu og menn þurfa að vinna sér inn sæti í liðinu," sagði Heimir ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner