Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
banner
   lau 03. september 2016 16:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fransisco: Viljum fara upp til að spila stórkostlegan fótbolta
Fransisco Cruz kann vel við sig í Grindavík
Fransisco Cruz kann vel við sig í Grindavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög glaður og mjög stoltur af liðinu mínu," sagði Spánverjinn Fransisco Eduardo Cruz Lemaur, varnarmaður Grindvíkinga, eftir 1-0 sigur á Fjarðabyggð í dag.

„Núna munum við fagna þar sem þetta var mjög erfiður leikur, erfitt tímabil og núna eru allir ánægðir og tilbúnir að fagna."

Sigurinn þýddi það að Grindavík mun aftur spila í deild þeirra bestu á næsta tímabili, Pepsi-deildinni. Fransisco segir að lykillinn að góðu gengi Grindvíkinga sé búningsklefinn og góður andi inn í honum.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  0 Fjarðabyggð

„Við höfum frábæra stráka og frábært lið og þegar við vinnum saman og vinnum vel þá fáum við úrslit," sagði Fransisco.

Hann er að sjálfsögðu spenntur fyrir framhaldinu.

„Við viljum fara upp til þess að spila stórkostlegan fótbolta eins og við höfum verið að spila á þessu tímabili og njóta fótboltans."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner