Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 07. febrúar 2020 18:30
Elvar Geir Magnússon
Daley Blind í hóp hjá Ajax eftir hjartavandræði
Daley Blind.
Daley Blind.
Mynd: Getty Images
Hollenski varnarmaðurinn Daley Blind snýr aftur í leikmannahóp Ajax á sunnudaginn.

Blind var greindur með hjartasjúkdóm í desember en hann er núna aftur byrjaður að æfa með liði sínu.

Í tilkynningu frá Ajax segir að Blind hafi gengist undir fjölda skoðana lækna og hafi snúið aftur til æfinga að fullu í síðustu viku.

Blind, sem er 29 ára og lék áður með Manchester United, var greindur með hjartavöðvaslen, en það felur í sér að hjartað á í erfiðleik­um með að dæla blóði í lík­amann.

Ajax er á toppi hollensku deildarinnar, með þremur stigum meira en AZ Alkmaar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner