Nágrannalið Cruzeiro og Atlético Mineiro áttust við í úrslitaleik í fylkisbikarkeppni í Brasilíu í nótt og stóð Cruzeiro uppi sem sigurvegari.
Liðin hafa áratuga ríg að baki enda hafa þau lengi vel barist um völdin í heimaborg sinni Belo Horizonte.
Í nótt skoraði Kaio Jorge, fyrrum leikmaður Juventus, eina mark leiksins í sigri Cruzeiro eftir stoðsendingu frá Gerson, fyrrum leikmanni AS Roma og Marseille.
Cruzeiro var sterkari aðilinn og verðskuldaði sigurinn að lokum, en það sauð allt upp úr á lokasekúndum leiksins eftir átök á milli markvarðar Atlético og sóknarleikmanns Cruzeiro.
Everson, 35 ára markvörður Atlético, var ósáttur eftir samstuð við Christian í liði Cruzeiro sem var of seinn í boltann og hljóp því á Everson, sem brást mjög illa við. Everson réðst á Christian þar sem hann lá í jörðinni og út brutust heljarinnar átök þar sem ekkert var gefið eftir.
Menn kýldu, spörkuðu og reyndu að skalla hvorn annan og mátti sjá fræga leikmenn á borð við Hulk, Renan Lodi og Bernard taka þátt í átökunum.
Brawl breaks out between Cruzeiro and Atletico Mineiro players.
by
u/Green-Discussion74 in
soccer
Athugasemdir



