Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 11:00
Haraldur Örn Haraldsson
„Þetta er bara þannig heimur að það er öllum drullu sama um þig nema þér sjálfum"
Alex var tæpa tvo mánuði hjá Njarðvík áður en hann skrifaði undir hjá NSÍ
Alex var tæpa tvo mánuði hjá Njarðvík áður en hann skrifaði undir hjá NSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Stefán Marteinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég var með eins klásúlu í síðasta samning mínum við Fram líka.
,,Ég var með eins klásúlu í síðasta samning mínum við Fram líka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það var erfitt símtal, en Davíð sýndi mér síðan bara skilning og óskaði mér góðs gengis.
,,Það var erfitt símtal, en Davíð sýndi mér síðan bara skilning og óskaði mér góðs gengis.
Mynd: Fótbolti.net - Stefán Marteinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ Runavíkur
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ Runavíkur
Mynd: NSÍ Runavík

Alex Freyr Elísson gekk í raðir NSÍ Runavík í Færeyjum fyrir um mánuði síðan. Hann hafði þá verið leikmaður Njarðvíkur í tæpa tvo mánuði þar á undan, og það vakti töluverða athygli að hann skyldi fara frá Njarðvík eftir að vera nýbúinn að skrifa þar undir. Færeyska deildin byrjaði í gær en Alex spilaði allan leikinn fyrir NSÍ þegar liðið vann Víking Götu 1-0.


„Við byrjuðum í dag á 1-0 sigri. Þetta er búinn að vera mjög skemmtilegur mánuður hérna. Bara geggjaðar aðstæður og frábært umhverfi til að standa sig vel, segir Alex.

„Þetta er alveg mjög íslenskt. Ég hef náð að aðlagast mjög hratt, og það eru bara mjög skemmtilegir strákar hérna. Þeir eru búnir að hjálpa mér að aðlagast."

Alex var með klásúlu í samningi sínum hjá Njarðvík sem gerði honum kleift að fara frítt til erlendra félaga. Þetta var klásúlan sem hann nýtti til að fara til NSÍ.

„Ég var búinn að vera í sambandi við NSÍ, svo kom tilboðið frá Njarðvík. Síðan heyrir NSÍ aftur í mér og tekur stöðuna á mér. Þá er ég með þessa klásúlu í samningnum mínum sem ég nýtti mér. Ég held ég hefði nefnilega alltaf séð eftir því ef ég hefði ekki stokkið á þetta tækifæri. Þetta lið er með 4-5 landsliðsmenn og fleiri yngri landsliðsmenn, svo eru þeir í Evrópukeppni. Þannig ég held að ég hefði alltaf séð eftir því ef ég hefði ekki hoppað á þetta."

Það er öllum drullu sama um þig

Umboðsmaður Alex hefur verið milli tannana á fólki þar sem sagt er að menn hafa ekki verið ánægðir með vinnubrögð hans í þessu máli.

„Ég get ekki alveg svarað því. Fyrst og fremst hins vegar þarft þú bara að sjá um sjálfan þig, fótbolti er bara þannig heimur að það er bara öllum drullu sama um þig, nema þér sjálfum. Þannig þú þarft bara að setja sjálfan þig í fyrsta sætið og taka ákvörðun um hvað þér finnst best fyrir þinn feril. Þannig það er mögulega hægt að segja að þarna hafi verið illa vegið að Njarðvík, en svona er bara fótboltinn. Það er enginn leikmaður sem er ómissandi og þeir munu spjara sig, og fara örugglega bara beint upp í Bestu."

„Ég vildi bara hafa klásúluna ef eitthvað skyldi koma upp í sumar. Ég var með eins klásúlu í síðasta samning mínum við Fram líka."

Alex þurfti þá að segja Davíð Smára, þjálfara Njarðvíkur, frá því að hann væri að fara frá félaginu.

„Það var erfitt símtal, en hann sýndi mér síðan bara skilning og óskaði mér góðs gengis. Allir í Njarðvík tóku þessu bara mjög fagmannlega. Þeir sögðust vera spenntir að fylgjast með mér. Ég var mjög spenntur að vinna með Davíð. Ég fór mjög vel af stað hjá Njarðvík en ég þarf þá bara að standa og falla með þessari ákvörðun sama hvernig fer."

Siggi Raggi reyndi að fá hann áður

Sigurður Ragnar Eyjólfsson tók við þjálfun NSÍ fyrir þetta tímabil en Alex er fyrsti Íslendingurinn sem hann sækir til félagsins.

„Siggi reyndi að fá mig til Keflavíkur á láni frá Breiðabliki á sínum tíma. Það gekk ekki upp þannig hann hefur aldrei þjálfað mig fyrir þetta. Ég er spenntur að spila undir hans stjórn. Þetta lítur bara mjög vel út. Það er mjög næs að hafa annan Íslending hérna. Fínt þegar maður heyrir íslenskuna inn á milli þá fær maður aðeins gott í hjartað, það hjálpar."

Langar að fara mögulega í sterkari deild

Færeyska deildin er ekki talin neitt sérlega sterk deild, hvernig var að taka ákvörðun milli þess og toppliði í Lengjudeildinni?

„Ég held að sama hvað levelið er, bara ef þú ert að spila í efstu deild einhvers staðar. Ég er ennþá á góðum aldri og ég held að það skipti miklu máli ef mig langar að fara mögulega í sterkari deild. Þá er ég allavega að spila í efstu deild, sama hvort það sé í Færeyjum eða á Íslandi. Auðvitað er deildin pínu skipt í tvennt, það eru svona 4-5 lið sem eru sterkari en hin. Þannig deildin skiptist svolítið gæðalega, en hún er að verða sterkari. Það er mikið af landsliðsmönnum í deildinni, og gæðin á æfingum er mjög góð."

„Evrópa er stór ástæða fyrir því að ég tók þessa ákvörðun. Þessi Evrópu-gluggi er mjög stór, og ef ég stend mig vel í deildinni þá langar mig að taka eitthvað annað spennandi skref. Ég er mjög bjartsýnn á að það gerist."

NSÍ þýðir svo mikið fyrir fólkið

Getur þú sagt mér aðeins frá þessu félagi og bænum Runavík?

„Við setjum stefnuna á titilinn í ár. Það er búið að sækja þónokkra erlenda leikmenn, frá Skandinavíu. Við erum komnir með hörkulið, þannig að við stefnum á titilinn í ár. NSÍ þýðir svo mikið fyrir fólkið. Það er svo mikið af fólki í kringum klúbbinn, og þetta þýðir svo mikið fyrir fólkið í bænum, það er þvílíkur áhugi á fótboltanum hérna."

„Það er Bónus hérna, og einhver Sunset skyndibitastaður og frábær fótbolta aðstaða. Við erum með glænýja sundlaug, og ég er ekki alveg klár á því hvað búa margir hérna, en þetta er bara 10-15 mínútum frá Þórshöfn. Þetta er bara lítill og krúttlegur staður," segir Alex að lokum.


Athugasemdir
banner