Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meiddist um helgina en stefnir á að verða klár fyrir Íslandsmót
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, þurfti að fara af velli undir lok fyrri hálfleiks þegar KA tók á móti Grindavík í Lengjubikarnum á laugardag. Lokatölur urðu 0-0.

Birgir er lykilmaður í liðinu, vinstri bakvörður sem bar fyrirliðabandið í leiknum í gær.

„Þetta var bara létt tognun, fékk bara straum og hætti, verð sennilega frá í um þrjár vikur en verð klár fyrir mót. Ég hef lent í alvöru tognun og fann að þetta var ekki eins, sem betur fer," segir Birgir við Fótbolta.net.

Íslandsmótið hjá KA byrjar 12. apríl þegar Stjarnan mætir á Greifavöllinn. Viku áður mætir KA, og önnur Bestu deildar lið, til leiks í Mjólkurbikarnum.

Birgir er 25 ára og er uppalinn hjá KA. Hann þreytti frumraun sína 2018, lék með Leikni 2020-22 og á láni með Aftureldingu hluta af tímabilinu 2021. Hann sneri aftur í KA fyrir tímabilið 2023 og var síðasta tímabil hans fyrsta heila tímabil fyrir norðan í meistaraflokki, en tímabilin á undan var hann að klára háskólanám í Bandaríkjunum.
Athugasemdir
banner
banner