Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
   þri 10. mars 2026 13:00
Kári Snorrason
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Davíð er fæddur árið 2007.
Davíð er fæddur árið 2007.
Mynd: Keflavík
Fagnar hér marki sínu gegn Þrótti í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.
Fagnar hér marki sínu gegn Þrótti í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn efnilegi Davíð Helgi Aronsson gekk nýverið til liðs við Keflvíkinga á láni frá Íslandsmeisturum Víkings. Davíð mætti með stæl en í fyrsta leik sínum með Keflavík, sem var gegn Fram, skoraði hann tvö mörk.

Davíð er fæddur árið 2007 en hann lék á láni með Njarðvík í Lengjudeildinni í fyrra og spilaði þar 20 leiki.

Fótbolti.net fékk Davíð í heimsókn og ræddi við hann um komandi tímabil. Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Fyrsta heila tímabilið í efstu deild
„Það var mjög gaman að hafa skorað tvö í fyrsta leik. Kannski smá óvænt sem hafsent. Það er gaman að vera mættur í Keflavík. Markmiðið er auðvitað að skila góðum árangri í Bestu deildinni. Fyrir mig persónulega er það að þróa minn leik og spila í efstu deild.“

Hvernig líst þér á að koma inn í þitt fyrsta heila tímabil í efstu deild?
„Það er mjög spennandi. Tímabilið 2024, þegar við Víkingar lentum í 2. sæti, þá var ég viðloðandi hópinn og á bekknum. En það verður gaman að spila heilt tímabil núna í Bestu.“

Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi
„Það voru einhver önnur lið sem höfðu áhuga en Keflavík var alltaf planið. Þetta snerist í rauninni um hvort að einhver hafsent væri á förum frá Víkingi. Ég fór í seinni kantinum en ég er mjög ánægður að vera mættur.“

Kom einhvern tímann til greina að skipta alfarið til Keflavíkur?
„Ég persónulega vildi fara á láni því að ég vissi að það væri erfitt að fá mínútur hjá Víkingi. Það var klárt mál að fara á lán. Ég veit hvernig er að fara á láni, gerði það í fyrra með Njarðvík. Það bætti minn leik ótrúlega mikið og fékk mikið út úr því.“

Markheppinn vinstri fótar miðvörður
Davíð, sem er miðvörður, hefur verið markheppinn undanfarið. Hann skoraði fyrsta mark Víkings í 3-1 sigri Víkings gegn Þrótti í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. Hann bætti um betur í fyrsta leik með Keflavík og skoraði þar tvö mörk í 4-3 sigri gegn Fram.

Er þetta eitthvað sem koma skal?
„Ég tel mig hafa mörk í mér. Ég hef ekkert búinn að vera skora mikið fyrir utan þessa tvo leiki. Vonandi get ég haldið þessu áfram. En fyrst og fremst er ég í því að verja markið, en það er alltaf gott ef að mörkin koma.“

Hvernig myndiru lýsa þér sem leikmanni?
„Ég er örvfættur hafsent, rólegur á boltann. Ég tel mig geta fundið sendingar á milli lína og leyst upp pressu andstæðinga. Ég er góður í loftinu, snöggur miðað við stærð og fíla að spila fótbolta. Ég er ekkert að þrykkja honum upp völlinn af því bara.“
Athugasemdir
banner