Alonso mikill aðdáandi Zubimendi - Funda í þriðja sinn um Fernandes - Ten Hag að taka við Leverkusen?
Ali líður vel í Víkinni: Vona að ég get gefið til baka
Heimir fann lausn: Ekki gefa boltann á slæmum stöðum
Sölvi um mörkin: Þetta var góð pressa
Fékk svarið sem hann vildi fá - „Menn setjist á bekkinn og hugsi sinn gang"
Upplifði ógnvekjandi tíma í vetur - „Mjög þakklátur miðað við hvar maður var"
Æsingur eftir leik - „Illa að okkur vegið að saka okkur um að tefja"
Grímsi ósáttur að hafa verið bekkjaður - „Fáránlegt"
Ívar Ingimars: Frábært að fá þessa reynslu og máta sig við topplið í Bestu
Systurnar skoruðu báðar: Hún lætur mann stundum heyra það
Óskar Hrafn: Þegar tveir strengir slitna tekur tíma að ná aftur takti við hljómsveitina
Rúnar vildi fá víti: Dómarinn á að sjá þetta betur en ég
Jökull: Enginn fór og henti kuðung í sturtubotninn
Þorri Mar þakklátur Stjörnunni - „Sýnir að það sé ekkert okkar á milli"
Láki: Það var reiðarslag fyrir okkur
Valor fékk að velja undir lok gluggans: Gott að sjá vini mína aftur
Jón Þór: Töpum á öllum sviðum leiksins og ég á enga útskýringu á því
Sá yngsti í sögunni: Fór beint heim, hringdi í alla og lét þau vita
Birkir mjög sáttur á Hlíðarenda: Eignuðumst barn og konan vildi koma suður
Túfa: Sást í augunum á mönnum að þeir vildu svara fyrir sig
Lúkas Logi: Þetta er ekkert flókið
   lau 10. maí 2025 22:00
Anton Freyr Jónsson
Túfa: Sást í augunum á mönnum að þeir vildu svara fyrir sig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er bara ánægður með svarið eftir tapið í síðasta leik. Það sást í vikunni á æfingarsvæðinu og í dag fyrir leik að mönnum var ekki alveg sama eftir síðasta leik. Það var mikið svekkelsi, pirringur og reiði og við vildum svara fyrir okkur fyrir framan okkur stuðningsmenn og merkið sem við erum að bera." sagði Srdjan Tufegdzic þjálfari Vals eftir 6-1 sigurinn á ÍA í kvöld. 


Lestu um leikinn: Valur 6 -  1 ÍA

„Ég þurfti ekkert að gíra mína menn upp,  þetta eru alvöru karakterar sem ég er með í liðinu. Við tókum bara flottan fund eftir FH leikinn og töluðum bara hreint út hvað vantaði hjá okkur og á öllum æfingum í vikunni og á leikdegi að það sást í augunum á mönnum að menn vildu svara fyrir sig."

Tryggvi Hrafn, Lúkas Logi Heimisson og Patrick Pedersen skoruðu allir tvö mörk í kvöld og Tufa var ánægður með framlag þeirra í kvöld.

„Sóknarleikurinn er búinn að vera góður og það vantar aldrei hjá okkur en mér finnst meiri samstaða í varnarleiknum líka og það er eitthvað sem við verðum að vinna enn meira í til að að koma meiri stöðugleika til að öll lið verði í erfiðleikum með að komast í færi á móti okkur og hvað þá að skora mark."

Viðtalið við Tufa má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner