Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 11. ágúst 2019 10:39
Brynjar Ingi Erluson
Bale í leikmannahópi Real Madrid gegn Roma
Gareth Bale er mættur aftur í leikmannahópinn
Gareth Bale er mættur aftur í leikmannahópinn
Mynd: Getty Images
Velska stjarnan Gareth Bale er í leikmannahópnum hjá Real Madrid gegn Roma í kvöld.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, hefur þegar gefið það út að hann vilji losa sig við Bale en hann var nálægt því að ganga í raðir kínverska félagsins Jiangsu Suning.

Florentino Perez, forseti Madrídinga, ákvað þá að taka fram fyrir hendurnar á Zidane og hætti við að selja hann.

Bale var ekki með Madrídingum í Audi-bikarnum og spilaði þá ekki heldur gegn RB Salzburg á miðvikudag en hann mun spila gegn Roma í kvöld.

James Rodriguez er hins vegar ekki í hópnum en þetta er síðasti vináttuleikurinn fyrir mót.
Athugasemdir
banner
banner