Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. ágúst 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Griezmann skoraði í öruggum sigri á Napoli
Antoine Griezmann var öflugur
Antoine Griezmann var öflugur
Mynd: Getty Images
Barcelona 4 - 0 Napoli
1-0 Luis Suarez ('48 )
2-0 Antoine Griezmann ('56 )
3-0 Luis Suarez ('58 )
4-0 Ousmane Dembele ('63 )

Barcelona vann Napoli 4-0 er liðin mættust í æfingaleik á Michigan-leikvanginum í Bandaríkjunum í nótt.

Áhorfendur fengu ekki mikið fyrir peninginn í fyrri hálfleik en í þeim síðari brast stíflan. Úrúgvæski framherjinn Luis Suarez skoraði fyrsta markið. Hann átti sendingu á Antoine Griezmann sem var kominn inn fyrir en markvörður Napoli varði boltann út á Suarez sem skoraði örugglega.

Griezmann bætti við öðru eftir sendingu frá Jordi Alba áður en Suarez gerði þriðja mark leiksins, laglegt mark við vítateigsbogann eftir sendingu frá Ousmane Dembele. Það var svo franski vængmaðurinn sem fullkomnaði leik Barcelona eftir glæsilega sendingu frá Frenkie de Jong.

Það mátti setja stór spurningamerki við alla vega tvö af mörkum Barcelona en þar var sterk lykt af rangstöðu en ekkert dæmt. Lokatölur þó 4-0 og fínasta spilamennska hjá Börsungum.


Athugasemdir
banner
banner