Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 12. febrúar 2019 08:30
Magnús Már Einarsson
Benitez: Þeir skilja ekki reglurnar
Rafa Benítez stjóri Newcastle.
Rafa Benítez stjóri Newcastle.
Mynd: Getty Images
Newcastle missti af dýrmætum stigum í botnbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Willy Boly, varnarmaður Wolves, jafnaði 1-1 á 94. mínútu í leik liðanna.

Boly virtist brjóta á Martin Dubravka í marki Newcastle þegar hann skoraði markið.

Smelltu hér til að sjá markið á vef Vísis

„Þú verður að vernda markvörðinn. Við höfum verið hér í mörg ár og það er ennþá erfitt að útskýra þetta," sagði Rafael Benítez, stjóri Newcstle, eftir leik.

„Á Englandi skilja þeir ekki reglurnar svo þú getur sagt það sem þú vilt segja," bætti Benítez við aðspurður hvort um aukaspyrnu hefði verið að ræða.

Stuðningsmenn Newcastle voru ekki sáttir með dómgæsluna eins og sjá má hér að neðan.







Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner