Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 12. júlí 2019 17:15
Arnar Daði Arnarsson
Katrín Ásbjörns býst ekki við því spila í sumar
Katrín Ásbjörnsdóttir.
Katrín Ásbjörnsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn, Katrín Ásbjörnsdóttir eignaðist dreng 7. maí á þessu ári og hefur því ekkert leikið með Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Hún segist ekki stefna á að leika í Pepsi-Max deildinni í sumar. Í samtali við Fótbolta.net sagðist hún ætla taka stöðuna í haust varðandi framhaldið.

Katrín hefur leikið með Stjörnunni síðustu þrjú sumur en hún skoraði til að mynda sex mörk í Pepsi-deildinni síðasta sumar í 13 leikjum. Árið þar áður skoraði hún 13 mörk í 18 leikjum og sumarið 2016 skoraði hún níu mörk í 12 leikjum.

Þá hefur Katrín einnig leikið með Þór/KA og KR þar sem hún er uppalin.

Hún segist búast við því að koma til baka á knattspyrnuvöllinn fyrir næsta tímabil og haldi öllu opnu varðandi það hvar hún verður.

Katrín á að baki 19 landsleiki og hefur skorað í þeim eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner