,,Það versta er að maður er kannski orðinn vanur því að tapa 4-1 á útivelli en viðbrögðin eru alltaf eins. Ég er hundfúll með þessi mörk sem við erum að fá á okkur," sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs eftir 4-1 tap liðsins gegn Fram í Pepsi-deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Fram 4 - 1 Þór
,,Við erum að gefa of mikið færi á okkur varnarlega og þetta er ekki alveg nógu öflugt hjá okkur."
,,Við viljum meina að það sé liðið sem ber ábyrgð á varnarleik og það er ekki hægt að einblína á einn eða tvo leikmenn. Fyrst og fremst eiga menn að skella skuldinni á að þjálfarinn sé ekki nógu klár í varnarfræðum."
,,Ég vil ekki meina að allt sé í molum. Eitthvað af þessum mörkum eru falleg mörk og það er ekkert við því að gera. Það eru alltaf mistök þegar lið fá á sig mörk. Hvort sem það eru einstaklingar, varnarleikur eða uppstilling þjálfarans þá er þetta eitthvað sem við erum alltaf að reyna að laga."
Srdjan Rajkovic kom inn í mark Þórs fyrir Josh Wicks í dag. ,,Við fengum á okkur fimm mörk í síðasta leik og fáum á okkur fjögur núna þannig að það er spurning eftir hvað margar andvökunætur ég ákveð hver verður i markinu næst."
Sveinn Elías Jónsson, fyrirliði Þórs, byrjaði einnig á bekknum í dag. ,,Við erum að reyna að ýta okkur svolítið framar á völlinn og við erum með flottan og breiðan hóp. Menn hafa komið inn og út og ef vel tekst til þá fagna allir breytingum en þegar illa gengur tala menn um mistök og kannski voru mistök í dag að hafa hann á bekknum."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























