Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   mið 19. júní 2013 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Óli Brynjólfs: Seltirningar vilja KR
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Ólafur Brynjólfsson, þjálfari Gróttu í 2. deildinni, var í skýjunum í kvöld er lið hans komst í 8-liða úrslit Borgunarbikarsins eftir 3-2 sigur á Magna.

,,Ég er gríðarlega ánægður að við erum komnir áfram, það er klárt. Við gerðum þetta miklu erfiðara fyrir okkur en þurfti. Við vorum með leikinn í hendi okkar, 2-0 yfir og einum fleirri," sagði Ólafur.

Grótta komst í fyrsta sinn í sögunni í 8-liða úrslit bikarsins í kvöld, en stoltið er mikið á Seltjarnarnesi í kvöld.

,,Við ætluðum okkur áfram. Fyrsta skiptið í sögu Gróttu í 8-liða úrslitum, gott að vera komnir í pottinn, bara frábært. Það er bara gaman að komast í sögubækurnar."

Ólafur segir að Seltigningar vilji fá KR-inga, en þeir unnu Leiknismenn nokkuð örugglega í kvöld.

,,Ég veit að Seltirningar vilja KR, þeir vilja fá þá á Gróttuvöll, en mér er alveg sama. Við förum í þann leik til að vinna, bara spurning hvaða lið það er," sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner