Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
banner
   sun 20. desember 2020 20:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keane um orð Neville: Meira af Scholes í McTominay
Paul Scholes
Paul Scholes
Mynd: Getty Images
„Scott McTominay hefur skyndilega breyst í blöndu af Paul Scholes og Roy Keane," sagði Gary Neville sem lýsti leik Manchester United og Leeds United á Sky Sports í dag.

McTominay skoraði tvö mörk á fyrstu þremur mínútunum og þá notaði Neville þessi orð til að lýsa því sem hann sá.

Roy Keane var sérfræðingur í setti hjá Sky Sports í dag og tjáði sig um þessi ummæli Neville.

„Mér finnst vera meira af Scholes í honum, ef ég á að vera sanngjarn," sagði Keane.

Keane skoraði 57 deildarmörk á ferlinum en Scholes koraði 107.

Sjá einnig:
McTominay setti met - „Skyndilega breyst í blöndu af Scholes og Keane"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner