Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
banner
   sun 20. desember 2020 16:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
McTominay setti met - „Skyndilega breyst í blöndu af Scholes og Keane"
Marki fagnað í dag
Marki fagnað í dag
Mynd: Getty Images
Manchester United leiðir 2-0 þegar rúmar 10 mínútur eru liðnar af leik Manchester United og Leeds United. Scott McTominay skoraði bæði mörk liðsins og komu þau eftir rúma mínútu og svo rúmri mínútu síðar, áður en þrjár mínútur voru búnar.

Fyrra markið kom eftir sendingu Bruno Fernandes og það síðara eftir undirbúning Anthony Martial.

Gary Neville, fyrrum leikmaður Man Utd, er að störfum hjá Sky Sports í kringum leikinn og er hann eðlilega hrifinn af því sem hann hefur séð frá McTominay.

„Scott McTominay hefur skyndilega breyst í blöndu af Paul Scholes og Roy Keane," sagði Neville snemma leiks. Scholes og Keane eru tveir bestu miðjumenn í sögu Man Utd.

McTominay setti með þessu met því enginn hefur skorað tvennu á fyrstu þremur mínútunum í leik í úrvalsdeildinni fyrr en í dag á Old Trafford.
Athugasemdir
banner
banner