Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. febrúar 2021 18:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Jó skoraði sigurmarkið í frumraun sinni með Lech
Cluj upp að hlið FCSB
Mynd: Lech Poznan
Aron Jóhannsson skoraði sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik fyrir pólska félagið Lech Poznan. Aron skrifaði undir á dögunum og í dag var komið að fyrsta leiknum. Sá var gegn Slask Wroclaw á heimavelli.

Aron skoraði eina mark leiksins, sigurmarkið, á 57. mínútu eftir undirbúning Jan Sykora. Aron lék með Hammarby á síðustu leiktíð en kaus að söðla um og varð Lech fyrir valinu sem næsta félag.

Lech er í 10. sæti pólsku Ekstraklasa þegar 18. umferð deildarinnar er enn í gangi. Slask er í 6. sætinu.

Í Rúmeníu vann CFR Cluj, lið Rúnars Más Sigurjónssonar, gegn Gaz Metan Medias, 0-1 á útivelli. Rúnar Már var ekki í leikmmannahópi Cluj en hann kom frá Astana á dögunum. Cluj er með 51 stig líkt og FCSB á toppi deildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner