Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fös 20. mars 2026 00:46
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Þægilegt fyrir ÍR
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 4 - 0 Álftanes
1-0 Rósa Lind F. H. Víkingsdóttir ('34)
2-0 Sigríður Salka Ólafsdóttir ('59)
3-0 Margrét Arnbj. Vilhjálmsdóttir ('78)
4-0 Hildur Eyglóard. Bragadóttir ('87)

ÍR og Álftanes áttust við í eina leik gærkvöldsins í C-deild Lengjubikarsins og skópu heimakonur þægilegan sigur.

Rósa Lind Víkingsdóttir skoraði eina markið í fyrri hálfleik til að ná forystunni fyrir ÍR og kláruðu stöllur hennar dæmið með þremur mörkum í síðari hálfleiknum.

Lokatölur 4-0 fyrir ÍR sem er með sex stig eftir þrjár umferðir, í öðru sæti riðilsins.

Álftanes hefur lokið keppni og endar liðið með eitt stig eftir fjórar umferðir.
Athugasemdir
banner
banner