U17 landslið kvenna mætir Serbíu í lokaleik sínum í seinni umferð undankeppni EM 2026.
Stelpurnar mæta í leikinn gegn heimastelpum án stiga eftir nauma tapleiki gegn Frakklandi og Austurríki í fyrstu tveimur umferðunum.
Þær serbnesku verða erfiðar að eiga við en þær eru með þrjú stig eftir sigur gegn Frakklandi og tap gegn Austurríki.
Þetta er mikilvægur leikur þar sem Ísland þarf á sigri að halda til að eiga von um að halda sér uppi í A-deild fyrir næstu undankeppni.
Leikurinn hefst klukkan 11:00 að íslenskum tíma og fer hann fram á æfingasvæði serbneska fótboltasambandsins.
Bein útsending frá leiknum verður á YouTube rás serbneska fótboltasambandsins.
25.02.2026 14:30
Hópur U17: Flestar frá Stjörnunni
Athugasemdir



