Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. apríl 2019 11:00
Arnar Helgi Magnússon
Alisson finnur ekki fyrir pressu
Mynd: Getty Images
Liverpool mætir Cardiff í ensku úrvalsdeildinni í dag en flautað verður til leiks á Cardiff City Stadium klukkan 15:00.

Alisson hefur farið á kostum í marki Liverpool á leiktíðinni. Hann hefur haldið hreinu oftast allra markvarða í deildinni.

„Það er enginn pressa á okkur," segir Alisson. „Við vitum að við eigum möguleika á því að finna titla og það er kannski meiri ábyrgðartilfinning heldur en pressa."

„Við spilum fyrir risastóran klúbb í Liverpool með ástríðufulla stuðningsmenn sem þrá ekkert heitar en ensku úrvalsdeildina og ekki síst Meistaradeildina."

Ef Liverpool kemst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á liðið sjö leiki eftir á leiktíðinni.

„Það er mikil vinna framundan. Ekki bara þessir sjö leikir. Við þurfum að taka hvern leik fyrir sig, skref fyrir skref."
Athugasemdir
banner
banner