Fyrstu leikjum dagsins er lokið hjá Íslendingunum sem spila erlendis og lagði Kolbeinn Birgir Finnsson fyrsta markið upp í sigri Vålerenga.
Kolbeinn lék allan leikinn í vinstri bakvarðarstöðunni á útivelli gegn Rosenborg og urðu lokatölur 0-2. Vålerenga er með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar án þess að fá mark á sig.
Í efstu deild í Póllandi fékk Gísli Gottskálk Þórðarson að spila síðasta hálftímann í þægilegum sigri Lech Poznan. Staðan var 3-0 þegar Gísla var skipt inn og lagði hann síðasta mark leiksins upp, svo lokatölur urðu 4-1.
Lech Poznan er með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar eftir þennan sigur, með 44 stig eftir 26 umferðir í afar jafnri deild.
Í næstefstu deild í Þýskalandi kom Valgeir Lunddal Friðriksson inn af bekknum í stóru tapi Fortuna Düsseldorf gegn Hertha Berlin á eigin heimavelli. Valgeiri var skipt inn í stöðunni 2-4 og urðu lokatölur 2-5. Valgeir meiddist í lok febrúar og eru góðar fréttir að hann sé mættur strax aftur á völlinn þremur vikum síðar.
Düsseldorf er þremur stigum frá fallsæti eftir þetta tap.
Í þriðju deildinni varði Tómas Blöndal Petersson mark varaliðs Hoffenheim sem tapaði á heimavelli gegn toppliði Osnabrück. Hoffenheim siglir lygnan sjó tíu stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 35 stig eftir 30 umferðir.
Í hollenska boltanum byrjaði Stefán Ingi Sigurðarson í fremstu víglínu hjá Go Ahead Eagles sem töpuðu í Utrecht. Alfons Sampsted var ónotaður varamaður og sigla Ernirnir lygnan sjó í neðri hluta efstu deildar eftir tapið.
Willum Þór Willumsson var þá ónotaður varamaður í 2-2 jafntefli hjá NEC Nijmegen gegn Heerenveen. Nijmegen er spútnik lið tímabilsins í Hollandi og situr í þriðja sæti deildarinnar, í harðri baráttu um meistaradeildarsæti.
Í ítölsku C-deildinni var Sveinn Aron Guðjohnsen í byrjunarliði Cavese sem gerði markalaust jafntefli á heimavelli. Liðið er fimm stigum frá umspilssæti þegar fimm umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Í Suður-Kóreu lék Hólmbert Aron Friðjónsson fyrri hálfleikinn í stóru tapi hjá Gwangju FC. Staðan var 1-0 í hálfleik en lokatölur urðu 5-0. Gwangju er með sex stig eftir fimm fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.
Í efstu deild í Danmörku fór íslenski landsliðsmaðurinn Daníel Leó Grétarsson meiddur af velli í fyrri hálfleik er Sönderjyske tapaði gegn Nordsjælland.
Liðin eru í harðri baráttu um evrópusæti og eru jöfn á stigum í þriðja sæti eftir viðureign dagsins, með 37 stig eftir 24 umferðir. Hinn 18 ára gamli Daníel Ingi Jóhannesson var ónotaður varamaður í sigurliði Nordsjælland.
Að lokum byrjaði Hlynur Freyr Karlsson á bekknum í jafntefli hjá Brommapojkarna í æfingaleik gegn Västerås.
Rosenborg 0 - 2 Valerenga
Lech Poznan 4 - 1 Termalica B-B
Dusseldorf 2 - 5 Hertha Berlin
Hoffenheim II 0 - 1 Osnabruck
Utrecht 2 - 0 Go Ahead Eagles
NEC Nijmegen 2 - 2 Heerenveen
Cavese 0 - 0 Foggia
Seoul 5 - 0 Gwangju
Nordsjælland 2 - 0 Sönderjyske
Brommapojkarna 2 - 2 Vasteras
Athugasemdir




