Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
   fös 23. júní 2023 21:50
Sverrir Örn Einarsson
Magnús Þór: Við ætlum að vinna þann leik
Magnús Þór Magnússon
Magnús Þór Magnússon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Bara svekkelsi að ná ekki þremur stigum. Mér fannst við vera ívið sterkari þótt þetta hafi verið svona baráttuleikur og jöfn lið en ef eitthvað var þá vorum við betri úti á velli en það dugar ekki alltaf. “Sagði Magnús Þór Magnússon fyrirliði Keflavíkur um sitt mat á leiknum eftir 1-1 jafntefli Keflavíkur gegn Fylki suður með sjó fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  1 Fylkir

Langt er liðið síðan Keflavík vann síðast leik en það var gegn Fylki í fyrstu umferð deildarinnar. Hefur gengið eitthvað sest á sálina á mönnum og valdið þeim erfiðleikum?

„Já klárlega en ég er samt ánægður með okkur. Það er auðvelt að fá mark í andlitið og detta niður og setja hausinn niður í bringu og vera litlir. En mér fannst við ekki gera það, við héldum áfram sem sýnir ákveðinn karakter og við þurfum að halda honum áfram og knýja fram sigra.“

Næst á dagskrá hjá Keflavík er heimsókn til KR á Meistaravelli. Það stóð ekki á Magnúsi þegar hann var spurður út í það verkefni.

„Við ætlum að vinna þann leik. Það er ekki flóknara en það.“

Sagði Magnús en allt viðtalið má sjá hér að ofan
Slapp
Athugasemdir
banner