Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 24. maí 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Zidane: Ég vel liðið, er það skilið?
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane virkaði pirraður á fréttamannafundi Real Madrid á dögunum þar sem hann var spurður ítrekað út í yfirvofandi aðgerðir Real Madrid á leikmannamarkaðinum.

Viðmót franska þjálfarans skánaði ekki þegar liðsval hans fyrir síðustu umferðir var gagnrýnt, sérstaklega sú ákvörðun að nota Keylor Navas og Thibaut Courtois til skiptis í markinu. Zidane var spurður hvort það væru einhver öfl innan félagsins sem myndu setja kröfu á spiltíma fyrir Courtois.

„Ég er sá sem ákveður hver er aðalmarkvörður, varamarkvörður og þriðji markvörður. Ég vel liðið, er það skilið? Um leið og ég fæ ekki að velja liðið þá fer ég héðan," svaraði Zidane.

Zidane hefur verið orðaður við Juventus en hvorki ítalskir né spænskir fjölmiðlar telja raunhæfar líkur á að hann skipti yfir í sumar, enda aðeins nýlega ráðinn aftur til Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner