Antonio Rudiger, varnarmaður Real Madrid, segist hafa orðið fyrir kynþáttafordómum undir lokin á leik liðsins gegn mexíkóska liðinu Pachuca á HM félagsliða í gær.
Rudiger reifst við Gustavo Cabral, fyrirliða Pachuca, í uppbótatíma eftir að hann taldi að Cabral hafi brotið á sér. Rudiger ræddi síðan við dómarann sem krosslagði hendur fyrir framan bringuna á sér sem gefur til kynna að reglur gegn kynþáttafordómum hafi verið virkjaðar.
Það er óljóst hvort fordómarnir hafi komið frá stuðningsmönnum eða leikmönnum. Xabi Alonso, stjóri Real Madrid, staðfesti að FIFA sé að rannsaka málið.
„Rudiger sagði þetta og við trúum honum. Það er mikilvægt að hafa enga þolinmæði fyrir svona hlutum. FIFA er að rannsaka þetta, það er allt sem ég get sagt," sagði Alonso.
Athugasemdir