Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Stórsigur hjá Man City og liðið komið áfram
Mynd: EPA
Manchester City er komið áfram í 16-liða úrslitin á HM félagsliða eftir stórsigur gegn Al-Ain í nótt.

Ilkay Gundogan kom liðinu yfir og hinn 19 ára Claudio Echeverri bætti öðru markinu við. Það var síðan Erling Haaland sem skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu fyrir lok fyrri hálfleiks.

Oscar Bobb og Rayan Cherki skoruðu sitt markið hvor til að innsiglað sigurinn. City er í 2. sæti í G-riðli með sex stig, eins og toppliði Juventus en liðin mætast í lokaumferð riðlakeppninnar til að skera úr um hvort liðið endar ofar fyrir útsláttakeppnina.

Salzburg og Al-Hilal gerðu markalaust jafntefli í gærkvöldi. Salzburg er í 2. sæti með fjögur stig á meðan Al-Hilal er í 2. sæti með tvö stig fyrir lokaumferðina.

Manchester City 6 - 0 Al Ain
1-0 Ilkay Gundogan ('8 )
2-0 Claudio Echeverri ('27 )
3-0 Erling Haaland ('45 , víti)
4-0 Ilkay Gundogan ('73 )
5-0 Oscar Bobb ('84 )
6-0 Rayan Cherki ('89 )

Salzburg 0 - 0 Al-Hilal
Athugasemdir
banner
banner