Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða í dag - Línur eru farnar að skýrast
Mynd: EPA
Lokaumferðin í riðlakeppni HM félagsliða hefst í dag. Keppni í A og B riðli lýkur í nótt.

Botafogo er á toppnum í B-riðli en Atletico mun falla úr leik með tapi gegn brasilíska liðinu. Með sigri Atletico gæti PSG fallið úr leik ef franska liðið tapar gegn Seattle Sounders.

Þá lýkur keppni í A-riðli þar sem Palmeiras og Inter Miami eru með fjögur stig á toppnum. Liðin mætast í nótt. Porto og Al Ahly eiga enn möguleika á að komast áfram en liðin eru bæði með eitt stig.

mánudagur 23. júní

HM félagsliða
19:00 Atletico Madrid - Botafogo
19:00 Seattle Sounders - PSG
01:00 Porto - Al Ahly
01:00 Inter Miami - Palmeiras
Athugasemdir
banner
banner