Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
EM U21: Þýskaland vann níu leikmenn Ítalíu í framlengingu
Mathys Tel
Mathys Tel
Mynd: EPA
Það er orðið ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum á EM U21 en síðustu tveir leikirnir í 8-liða úrslitunum fóru fram í kvöld.

Danmörk og Frakkland áttust við. Danmörk náði 2-1 forystu en Quentin Merlin jafnaði metin fyrir Frakka áður en Mathys Tel tryggði liðinu sigurinn.

Þýskaland lagði Ítalíu eftir framlengdan leik. Staðan var 2-2 eftir 90 mínútur en Ítalía jafnaði metin á sjöttu mínútu uppbótatíma þrátt fyrir að vera tveimur mönnum færri. Það var hins vegar Merlin Rohl, leikmaður Freiburg, sem tryggði Þjóðverjum sigurinn í framlengingu.

England og Holland mætast í undanúrslitum annars vegar og hins vegar Þýskaland og Frakkland. Undanúrslitin fara fram á miðvikudaginn.

Þýskaland 3 - 2 Ítalía
0-1 Koleosho ('58 )
1-1 Woltemade ('68 )
2-1 Weiper ('87 )
2-2 Ambrosino ('90 )
3-2 Röhl ('117 )
Rautt spjald: Gnonto ('81 ), Zanotti ('90 )

Danmörk 2 - 3 Frakkland
1-0 Bischoff ('18 )
1-1 Cisse ('44 )
2-1 Sørensen ('49 )
2-2 Merlin ('84 )
2-3 Tel ('85 )
Athugasemdir
banner
banner