Enskir fjölmiðlar greina frá því að Sir David Beckham hafi verið fyrsti maðurinn sem kom ókunnugri konu til aðstoðar eftir að hún hafði dottið illa á skíðum.
Beckham var í skíðaferð í frönsku ölpunum en hann hefur stundað snjóbretti síðan fótboltaferlinum lauk.
Beckham var í skíðaferð í frönsku ölpunum en hann hefur stundað snjóbretti síðan fótboltaferlinum lauk.
The Sun segir að Beckham hafi verið með Harper dóttur sinni þegar þau urðu vitni að því þegar konan féll illa.
Beckham mætti og hjálpaði konunni að taka af sér skíðin og athugaði hvort það væri ekki í lagi með hana. Heimildarmaður blaðsins segir hann hafa sýnt mikla herramennsku.
Beckham fjölskyldan hefur verið mikið til umfjöllunar í enskum götublöðum eftir að Brooklyn Beckham greindi frá því að hann væri hættur að hafa samskipti við foreldra sína.
Brooklyn segir að þau séu á móti sambandi hans við Nicolu Peltz, en þau giftust árið 2022.
Athugasemdir




