Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 26. apríl 2019 09:31
Elvar Geir Magnússon
FH-ingar með fréttamannafund í beinni á Facebook
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH-ingar verða með nýjung hjá sér í dag en þeir bjóða upp á fréttamannafund í beinni á Facebook svæði sínu.

Í gegnum ummælakerfið geta stuðningsmenn sent inn spurningar.

Ef vel tekst til er áætlað að halda þessu áfram í sumar en Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, situr fyrir svörum klukkan 13:00.

FH-ingum er spáð þriðja sæti en þeir mæta HK-ingum, sem er spáð því neðsta, á morgun.

föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)

laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik (Grindavíkurvöllur)
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsung völlurinn)

Hér að neðan má sjá viðtal við Óla Kristjáns sem tekið var í vikunni:
Óli Kristjáns: Þurfum að tala deildina upp en ekki niður
Athugasemdir
banner
banner
banner