Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 26. apríl 2019 10:59
Elvar Geir Magnússon
Hörmungar dynja yfir fjölskyldu Sala - Pabbi hans látinn
Horacio. Myndin er tekin í jarðarför Sala.
Horacio. Myndin er tekin í jarðarför Sala.
Mynd: Getty Images
Faðir Emiliano Sala, Horacio, er látinn eftir hjartaáfall. Hann var 58 ára. Þetta gerist aðeins þremur mánuðum eftir að sonur hans fórst í hörmulegu flugslysi.

Emiliano lést í flugslysi 28. janúar þegar hann var í flugi til Cardiff, skömmu eftir að tilkynnt var um kaup Cardiff City á honum frá Nantes.

Lík hans fannst á hafsbotni 6. febrúar, tæplega tveimur vikum eftir að flugvél með tvo innanborðs hvarf af ratsjám.

Eftir flugslysið sagði Horacio að hann væri eyðilagður og væri að upplifa sanna martröð. Bæjarstjóri Progreso í Argentínu, heimabæjar Horacio, segir að hann hafi ekki náð að jafna sig á því sem gerðist fyrir Emiliano.

David Ibbotson, sem flaug vélinni, er sagður hafa gert mistök áður en flugvélin steyptist ofan í Ermarsundið.
Athugasemdir
banner
banner
banner