Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
   lau 26. júlí 2025 20:40
Alexander Tonini
Amin Cosic: Ekki vanur svona mörgum áhorfendum sem syngja í 90 mínútur
Amin Cosic í fyrsta leiknum með KR
Amin Cosic í fyrsta leiknum með KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þreyttur náttúrulega, frábær stemning á leiknum. Ég er ekki vanur svona mörgum áhorfendum og fólki sem er að syngja í 90 mínútur, þannig að ég er ánægður og mjög glaður", sagði Amin Cosic um upplifun sína eftir fyrsta leiknum í KR treyjunni sem endaði með 1-1 jafntefli

En hefur hann spilað fyrir framan rúmlega 3 þúsund manns?

„Nei aldrei. Það mesta var kannski á móti Keflavík 1200 manns. Það var geggjuð tilfinning"

Amin byrjaði á vinstri kantinum og það liðu ekki nema rétt rúmlega 20 mínútur þegar Blikar áttuðu sig á því að Valgeir Valgeirsson þyrfti aðstoð. Blikar byrjuð þá tvöfalda á hann í hvert skipti sem hann fékk boltann á vinstri kantinum og sú taktík hélst út leikinn.

Lestu um leikinn: KR 1 -  1 Breiðablik

Amin Cosic gékk til liðs við KR í glugganum og Óskar Hrafn var ekki lengi að átta sig á því að þessi leikmaður þarf að vera í byrjunarliðinu. En átti hann von á því að vera í byrjunarliðinu?

„Af hverju ekki", svaraði Amin fullur sjálfstrausts, eitthvað sem vantaði heldur ekki inni á vellinum.

Óskar Hrafn hafði orð á því fyrir leik að Amin Cosic kemur með eitthvað nýtt inn í lið KRinga, eitthvað sem liðið hefur ekki búið yfir áður.

„Jú við vorum frábærir í dag. Mér fannst við vera betri í dag og vorum óheppnir að taka ekki þrjú stig. Svona er fótboltinn en ég held að ég hafi spilað bara nokkuð fínt, alltaf hægt að gera betur, en fínn leikur hjá mér"

Amin Cosic kom úr Lengjudeildinni þar sem hann hefur spilað fyrir Njarðvík við góðan orðstír. En fannst honum erfitt að taka stökkið úr Lengjudeildinni í Bestu deild?

„Maður spilar betur á móti betri liðum og að er alltaf skemmtilegt að spila í svona stórum leikjum"
Slapp
Athugasemdir
banner
banner