Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 27. september 2019 09:30
Magnús Már Einarsson
Pogba, Rashford og Martial tæpir fyrir Arsenal leikinn
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, er tæpur fyrir leik liðsins gegn Arsenal á mánudagskvöld. Pogba sneri aftur eftir meiðsli gegn Rochdale í vikunni en þar meiddist hann aftur.

„Staðan er þannig að hann kláraði leiinn en hann fékk högg á ökklann og hann er mjög bólginn. Hann er í kapphlaupi við tímann fyrir mánudaginn," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, á fréttamannafundi í dag.

Anthony Martial meiddist gegn Crystal Palace í síðast mánuði og Marcus Rashford fór meiddur af velli gegn West Ham um síðustu helgi. Þeir eru báðir mjög tæpir fyrir mánudaginn.

„Ég myndi ekki setja líf mitt undir (á að þeir spili) en þetta er hluti af leiknum. Þú vinnur með það sem þú hefur og við erum spenntir fyrir þessum leik," sagði Solskjær.
Athugasemdir
banner
banner