Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 27. september 2022 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Ceské Budejovice
Hitað upp í handbolta á æfingu U21 í Tékklandi
Róbert Orri Þorkelsson mætti með handboltann á æfinguna.
Róbert Orri Þorkelsson mætti með handboltann á æfinguna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

U21 karla mætir Tékkum í umspili um sæti á EM klukkan 16:00 í dag en leikið er í Ceské Budejovice í Tékklandi. 


Liðið æfði í gær á keppnisvellinum eftir að hafa nýtt sunnudaginn allan í að ferðast til Tékklands.

Áður en æfingin hófst í gær fór hópur íslensku drengjanna í æfingar með lítinn handbolta sem Róbert Orri Þorkelsson hafði meðferðis á æfinguna. Hann er sonur Þorkels Guðbrandssonar sem gerði garðinn frægan með handboltaliði Aftureldingar. 

Í hópnum er einmitt Bjarki Steinn Bjarkason sem er sonur einnar af goðsögnum Íslands í handboltanum, Bjarka Sigurðssonar.  Bjarki hinn yngri sýndi reyndar meiri takta í að verja handboltaskotin á æfingunni í gær en ekki í að skjóta eins og karl faðir hans gerði mikið af. Myndir af þessu má sjá að -neðan.

Fyrri leik liðanna lauk með 1 - 2 sigri Tékka á Víkingsvelli á föstudaginn og því ljóst að Ísland verður að vinna hér í Tékklandi. 

Fótbolti.net er Tékklandi og við færum ykkur beina textalýsingu og viðtöl um leið og leik lýkur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner