Breiðablik tók á móti tyrkneska liðinu Samsunspor á Laugardalsvelli í kvöld sem endaði með 2-2 stórmeistarajafntefli
Aðspurður um tilfinninguna eftir leik svaraði Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks,
„Hún er bara góð, bara mjög ánægður með frammistöðuna sem slíka. Hún var bara mjög flott, mjög jákvætt, margt mjög gott í okkar leik. Svona pínu svekktur að við náðum ekki bara að klára dæmið og vinna þennan leik."
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 2 Samsunspor
„Auðvitað vildum við mæta með pínu hraða og það gekk alveg eftir í dag. Mér fannst við ná að opna þá á köflum og ná að splundra svona þeirra varnar setup-i og vorum direct þegar við þurftum að vera það og svo þegar leið á fyrri hálfleikinn þá fannst mér við finna taktinn líka inn á miðsvæðinu og finna sendingar á milli lína og annað. Þannig heilt yfir gerðum við bara mjög vel."
Ágúst Orri átti frábæran leik í dag og sprengdi oft upp varnarleik Samsunspor hversu mikilvægt er að hafa leikmann eins og hann?
Já hann er náttúrlega bara búinn að sýna það. Hann er frábær leikmaður og við hefðum getað fengið hann í tvær stoðsendingar hérna alveg undir lokin en hann sinnti varnarleiknum líka alveg frábærlega og allir strákarnir."
„Pressan var til fyrirmyndar á köflum. Svo þessi hraði, ekki bara hjá honum heldur hjá Óla og Aroni líka og Höggi var líka ótrúlega duglegur líka að taka djúphlaup og svo góður í millisvæðinu. Það sama má segja bara um alla, Davíð var líka outstanding þarna í vinstri bakverði. Eins og ég segi þeir voru allir frábærir í dag."
„Nú þurfum við að byggja ofan á þessu og aðeins að loka fyrir markið okkar og skora mörk á sama tíma. Þannig að við tökum bara margt jákvætt út úr þessu og verðum klárir fyrir Shamrock.
Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan























