Portúgalski markvörðurinn Rui Patrício mun taka þátt á HM félagsliða. Fabrizio Romano greinir frá þessu.
Patrício rennur út á samningi hjá Atalanta í sumar og hefur ítalska félagið gefið honum leyfi til að yfirgefa svæðið fyrr til að ganga til liðs við Al-Ain.
Patrício er 37 ára gamall og mun verja mark Al-Ain á HM í sumar. Hann gerir þó aðeins skammtímasamning við félagið sem gildir út mótið.
Patrício spilaði síðast landsleik fyrir Portúgal í fyrra en hann hafði verið markvörður Sporting CP, Wolves og Roma áður en hann gekk til liðs við Atalanta á eins árs samningi í fyrra.
Patrício er með 108 landsleiki að baki fyrir Portúgal og mun mæta Juventus, Manchester City og Wydad Casablanca í riðlakeppni HM í sumar.
Athugasemdir