Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal í viðræðum við Gabriel
Mynd: EPA
Enska stórliðið Arsenal er í viðræðum við brasilíska miðvörðinn sinn Gabriel Magalhaes um nýjan og endurbættan samning.

Gabriel er með tvö ár eftir af núverandi samningi sínum við Arsenal en félagið vill tryggja sér þjónustu hans til lengri tíma. Nýr samningur mun gilda til 2030.

Gabriel er 27 ára gamall og hefur spilað 210 leiki á fimm árum hjá Arsenal.

BBC greinir frá þessu og segir að samkomulag við varnarmanninn öfluga sé í höfn.

Gabriel spilaði 42 leiki á nýliðnu tímabili en missti af síðustu 12 leikjunum vegna meiðsla. Búist er við að þessi brasilíski landsliðsmaður verði búinn að jafna sig af meiðslunum fyrir upphaf næstu leiktíðar.
Athugasemdir
banner