Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Glæsileg endurkoma í Sandgerði
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Reynir S. 3 - 3 Ýmir
0-1 Andri Már Harðarson ('2 )
0-2 Óliver Úlfar Helgason ('20 )
0-3 Maoudo Diallo Ba ('41 , Sjálfsmark)
1-3 Jökull Máni Jakobsson ('70 )
2-3 Jordan Smylie ('74 )
3-3 Jordan Smylie ('90 )

Reynir Sandgerði tók á móti Ými í eina leik gærkvöldsins í 3. deildinni og létu mörkin ekki standa á sér.

Andri Már Harðarson skoraði fyrsta mark leiksins strax á annarri mínútu til að taka forystuna fyrir gestina og tvöfaldaði Óliver Úlfar Helgason forystuna á 20. mínútu.

Ýmismenn settu svo þriðja markið skömmu fyrir leikhlé þegar Maoudo Diallo Ba varð fyrir því óláni að gera sjálfsmark. Staðan var 0-3 í hálfleik og mættu Sandgerðingar grimmir út í seinni hálfleikinn.

Það tók þá góðan tíma að minnka muninn en þegar fyrsta markið var komið fylgdu hin tvö. Jökull Máni Jakobsson minnkaði fyrst muninn á 70. mínútu áður en Jordan Smylie skoraði fjórum mínútum síðar.

Jordan skoraði svo annað mark á lokamínútunum til að jafna leikinn og tryggja stig.

Frábær endurkoma skilaði 3-3 jafntefli og eru Sandgerðingar komnir með 7 stig eftir 5 fyrstu umferðir tímabilsins.

Ýmir situr eftir með 4 stig.

Reynir S. Ómar Castaldo Einarsson (m), Sindri Lars Ómarsson (53'), Jón Gestur Ben Birgisson, Maoudo Diallo Ba (72'), Jökull Máni Jakobsson, Magnús Magnússon (53'), Arnór Siggeirsson, Ólafur Darri Sigurjónsson (63'), Jordan Smylie, Bergþór Ingi Smárason (53'), Leonard Adam Zmarzlik
Varamenn Elfar Máni Bragason (53'), Óðinn Jóhannsson (53'), Alex Þór Reynisson (53'), Pálmar Sveinsson, Valur Þór Magnússon (72'), Ægir Þór Viðarsson (63'), Sindri Snær Reynisson (m)

Ýmir Indrit Hoti (m), Guðmundur Axel Blöndal, Patrik Hermannsson (21'), Hörður Máni Ásmundsson (53'), Emil Skorri Þ. Brynjólfsson, Andri Már Harðarson, Óliver Úlfar Helgason, Anton Karl Sindrason, Björn Ingi Sigurðsson (35'), Hrannar Þór Eðvarðsson, Jón Arnór Guðmundsson
Varamenn Baldvin Dagur Vigfússon, Birgir Magnússon, Tómas Orri Barðason (53), Theodór Unnar Ragnarsson (35), Tómas Breki Steingrímsson (21), Snorri Steinn Árnason (53), Dagur Eiríksson
3. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Hvíti riddarinn 5 5 0 0 15 - 7 +8 15
2.    Augnablik 5 4 1 0 16 - 6 +10 13
3.    KF 5 2 2 1 8 - 6 +2 8
4.    KV 5 2 1 2 15 - 9 +6 7
5.    Árbær 5 2 1 2 14 - 10 +4 7
6.    Reynir S. 5 2 1 2 13 - 15 -2 7
7.    Magni 5 2 1 2 5 - 10 -5 7
8.    Sindri 5 2 0 3 9 - 9 0 6
9.    Tindastóll 5 2 0 3 8 - 11 -3 6
10.    Ýmir 5 1 1 3 7 - 10 -3 4
11.    KFK 5 1 0 4 5 - 13 -8 3
12.    ÍH 5 1 0 4 11 - 20 -9 3
Athugasemdir