Íslendingarnir í Ham/Kam unnu 3-0 sigur á Strömsgodset í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Brynjar Ingi Bjarnason var í hjarta varnarinnar hjá Ham/Kam en Viðar Ari Jónsson kom inn af bekknum um miðjan síðari hálfleikinn.
Ham/Kam var að vinna annan deildarleikinn í röð og er nú komið upp í 12. sæti deildarinnar með 11 stig. Logi Tómasson var á bekknum hjá Strömsgodset en kom ekkert við sögu. Liðið er í 14. sæti með aðeins 6 stig.
Davíð Snær Jóhannsson byrjaði hjá Álasundi sem tapaði fyrir Ranheim, 2-1, í B-deildinni. Ólafur Guðmundsson kom inn á í hálfleik.
Álasund fékk rautt spjald á lokamínútunum fyrir að brjóta af sér í teignum og skoruðu heimamenn sigurmarkið úr spyrnunni. Svekkjandi úrslit fyrir Álasund sem er í 8. sæti með 13 stig og missti þarna af gullnu tækifæri til að blanda sér í toppbaráttuna.
Hinrik Harðarson var ónotaður varamaður hjá Odd sem vann Åsane, 1-0, sama átti við um Óskar Borgþórsson sem var á bekknum hjá Sogndal sem gerði 2-2 jafntefli við Raufoss.
Ari Sigurpálsson og Júlíus Magnússon komu inn af bekknum í síðari hálfleik er Elfsborg tapaði fyrir Hammarby, 2-0, í sænsku úrvalsdeildinni.
Elfsborg er í 4. sæti með 25 stig, tveimur stigum frá toppnum.
Arnór Ingvi Traustason og Ísak Andri Sigurgeirsson byrjuðu báðir hjá Norrköping sem tapaði fyrir GAIS, 2-0. Norrköping er í 10. sæti með 14 stig.
Athugasemdir