Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 15:00
Brynjar Ingi Erluson
Dembele um Mbappe: Kannski værum við betri með hann innanborðs
Mynd: EPA
Franski vængmaðurinn Ousmane Dembele segir að Paris Saint-Germain væri mögulega betra lið með Kylian Mbappe innanborðs en án hans, en þetta sagði hann á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik PSG gegn Inter í Meistaradeildinni.

PSG mun í annað sinn í sögu félagsins spila í úrslitaleik keppninnar, en frammistaða liðsins hefur verið hreint út sagt frábær á tímabilinu.

Frakkarnir spila meira eins og lið núna en þegar Kylian Mbappe var á mála hjá félaginu.

Hann yfirgaf PSG síðasta sumar og gekk í raðir Real Madrid á frjálsri sölu, en margir voru á því stjórstjarnan hafi haldið liðinu aftur. Dembele er hins vegar ekki endilega sammála því.

„Er þessi leikur auðveldari án Mbappe? Nei, kannski værum við enn betri á þessu tímabili með hann innanborðs. Mbappe átti sér þann draum að spila fyrir Real Madrid, en PSG hélt áfram á sömu braut. Það er hægt að segja að það sé tími fyrir og eftir Mbappe,“ sagði Dembele.

Dembele á góðan möguleika á að vinna Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu. Ef PSG tekst að vinna Inter í kvöld er hann kominn í bílstjórasætið um verðlaunin.
Athugasemdir
banner