Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Reynsla og erfiðleikar hluti af undirbúningnum - „Við erum vanir þessu“
Luis Enrique
Luis Enrique
Mynd: EPA
Spænski þjálfarinn Luis Enrique er á leið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í annað sinn á þjálfaraferli sínum er Paris Saint-Germain tekur á móti Inter á Allianz-leikvanginum í München í kvöld.

Enrique gerði Barcelona að Evrópumeisturum árið 2015 sem var þá fyrsta sinn sem hann fór í úrslit sem þjálfari.

PSG hefur þurft að komast yfir svakalegar hindranir á leið liðsins í úrslitaleikinn en það vann Liverpool, Aston Villa og Arsenal í útsláttarkeppninni og einnig Man City í deildarkeppninni.

Þjálfarinn segir liðið vant því að spila úrslitaleiki.

„Við erum lið sem vant því að spila úrslitaleiki. Við höfum þegar upplifað þetta og er hvatningin mikilvæg, en eins og ég segi þá erum við vanir þessu.“

„Það eru alltaf tvær leiðir til þess að túlka reynslu því hún getur farið á tvo vegu. Það er því mikilvægt að hafa reynsluna, en hún er auðvitað tilfærileg.“

„Það sem gerir okkur sterkt sem lið er hversu erfið vegferðin hefur verið. Það hafa verið hæðir og lægðir, en allt þetta basl getur líka verið ákveðið forskot.“

„Við erum vanir þessum úrslitaleikjum og spilað gegn mörgum af bestu liðum Evrópu. Við höfum spilað nokkra alvöru úrslitaleiki á leiðinni hingað. Við erum klárir og mætum óhræddir inn í leikinn,“
sagði Enrique.
Athugasemdir
banner
banner