Simone Inzaghi, þjálfari Inter, býst við frábærum úrslitaleik gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í kvöld.
Inter er að spila til úrslita í annað sinn á síðustu þremur tímabilum.
Liðið hefur spilað frábæran fótbolta undir Inzaghi og segir hann að allt þurfi að ganga upp til liðið lyfti Meistaradeildarbikarnum á loft í kvöld.
„Við munum þurfa allt til að vinna þennan leik og hvert einasta smáatriði mun skipta máli. Við mætum ótrúlega sterku og hættulegu liði PSG sem er með frábæran þjálfara og manni sem ég kann virkilega að meta í Luis Enrique.“
„Við erum komnir yfir vonbrigðin í titilbaráttunni á Ítalíu. Síðustu daga hef ég séð mikla festu og þráhyggju. Það er mjög jákvætt,“ sagði Inzaghi.
Inter tapaði fyrir Manchester City, 1-0, í úrslitum árið 2023, en hann segir aðstæður öðruvísi í dag.
„Þá vorum við ekki líklegri aðilinn, en við sýndum að við gátum veitt þeim samkeppni. Við áttum jafnvel meira skilið, en við vorum að mæta Guardiola og besta liði heims. Núna hefur undirbúningurinn aðeins breyst og er hver einast úrslitaleikur ólíkur hinum.“
„PSG er besta lið Evrópu í að halda bolta en við erum bestir í því á Ítalíu. Þetta eru tvö lið sem vita hvernig á að spila með boltann þannig það verður gríðarlega mikilvægt að færa hann vel á milli og ekki gefa þeim pláss. Lið eins og PSG fyrirgefur ekkert.“
Framtíð Inzaghi er óljós. Hann hefur verið orðaður við Al Hilal í Sádi-Arabíu en að ræða framtíðina var ekki efst á baugi Ítalans á blaðamannafundinum.
„Ég mun aðeins svara þér einu sinni. Þetta snýst ekki um mig. Ég á í góðu sambandi við stjórnina og við munum hittast á þriðjudag, en það eina sem skiptir mig máli akkúrat núna er úrslitaleikurinn,“ sagði Inzaghi.
Athugasemdir