Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 12:30
Brynjar Ingi Erluson
Marmoush á mark tímabilsins - Martínez með bestu vörsluna
Mynd: EPA
Martínez átti flottustu vörsluna
Martínez átti flottustu vörsluna
Mynd: EPA
Gullfallegt mark egypska leikmannsins Omar Marmoush gegn Bournemouth var valið flottasta mark tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

Markið gerði Marmoush á 20. mínútu í næst síðustu umferð deildarinnar.

Hann skaut af 30 metra færi í samskeytin vinstra megin og voru stuðningsmenn og sérfræðingar deildarinnar voru sammála um að þetta væri flottasta markið.

Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa, átti vörslu tímabilsins gegn Nottingham Forest í desember.

Hann varði á einhvern ótrúlegan hátt frá Nicolas Dominguez eftir hornspyrnu. Martínez sýndi ótrúleg viðbrögð á línunni, en markið hjá Marmoush og vörslu Martínez má sjá hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner