Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 13:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hjörtur líklega á förum og horfir til Skandinavíu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörtur Hermannsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net líklega á förum frá Grikklandi en samningur hans við gríska félagið Volos rennur út í lok mánaðar.

Hjörtur kom til Volos frá ítalska B-deildar félaginu Carrarese í janúar og kom strax inn í stórt hlutverk hjá Volos.

Hjörtur spilaði átján leiki með Volos og skoraði tvö mörk, seinna markið hjálpaði liðinu að tryggja sæti sitt í deildinni. Volos var í fallhættu en náði að halda sæti sínu í deildinni með nokkuð góðum lokahluta af tímabilinu.

Hann hefur verið á mála hjá PSV, Gautaborg, Bröndby, Pisa, Carrarese og Volos á sínum ferli. Hjörtur er þrítugur varnarmaður sem uppalinn er hjá Fylki en hefur verið erlendis síðan 2012.

Hann á að baki 28 landsleiki og hefur vakið athygli að hann hefur ekki fengið kallið í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar í fyrstu tvö verkefni hans sem þjálfara. Hjörtur var síðast í landsliðshópnum í október í fyrra.

Í viðtali við Tipsbladet á dögunum útilokaði Hjörtur ekki að snúa aftur í dönsku deildina en hann varð danskur meistari 2021 með Bröndby og bikarmeistari 2018.

„Ég er mjög opinn fyrir öllu, spenntur fyrir ferlinu. Ég þarf að hugsa um fjölskylduna líka, það er breytt frá því að ég var hjá Bröndby, en ég er mjög opinn. Ég þekki Superliga mjög vel og því mun ég auðvitað horfa til Danmerkur. Ég horfi á Skandinavíu, á hana alla. Ég hef líka spilað á Ítalíu í mörg ár, og gekk vel," sagði Hjörtur.

„Elsta barnið verður þriggja ára fljótlega og styttist í skóla, svo það þarf að hugsa um það líka. Sem fótboltamaður þarftu að vera undirbúinn fyrir allt, en ég átti mjög góð ár í Danmörku. Svo hvort það verði Danmörk, Svíþjóð eða Noregur eða eitthvað annað, það þarf allt að smella saman," sagði Hjörtur.
Athugasemdir
banner