Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   fim 17. maí 2018 20:14
Egill Sigfússon
Óli Kristjáns: Ánægður með spilamennsku liðsins
Óli er með 3 sigra í 4 leikjum
Óli er með 3 sigra í 4 leikjum
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH sigraði KA í Kaplakrika í kvöld 3-1 í 4.umferð Pepsí-deildar karla. Ólafur Kristjánsson þjálfari liðsins var ánægður með spilamennsku síns liðs við erfiðar aðstæður.

Lestu um leikinn: FH 3 -  1 KA

„Við spilum leikinn ef hann er settur á en það voru alveg góð rök fyrir að hann yrði spilaður á morgun en við fókuseruðum bara á að spila boltanum á jörðinni og úrslitin voru mjög sanngjörn."

Jónatan Ingi og Atli Guðnason byrjuðu inná í stað Geoffrey Castillion og Kristins Steindórssonar, Óli sagði það taktíska breytingu.

„Með Guðmann og Hallgrím sem er eitt sterkasta miðvarðarpar í deildinni vildum við fara með leikmenn með hraða á þá frekar en líkamlega sterka."

Rennacio Clarke er kominn með leikheimild en hefur ekki verið í leikmannahóp FH í þessum tveim leikjum síðan hann kom. Eddie Gomes var hins vegar í leikmannahópi FH í dag í fyrsta skipti og spilaði síðustu 10 mínúturnar. Óli sagði að Clarke væri væntanlegur til landsins á morgun.

„Hann spilaði síðustu 10 og er bara allur að koma, hann er nú ekki í 90 mínutna formi en hægt og bítandi kemst hann í form. Clarke kemur til landsins á morgun og kemur á æfingu í hádeginu."
Athugasemdir
banner
banner