Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 14. júní 2018 21:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Töluðum um að fækka miðjum sem við þurfum að taka"
Gunnar Þorsteinsson í leik með Grindavík.
Gunnar Þorsteinsson í leik með Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var örugglega ekki skemmtilegasti leikurinn fyrir áhorfendur en stuðningsmennirnir okkar koma bara til að sjá okkur taka stig," sagði Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindavíkur, eftir 1-0 útisigur á Fjölni í Pepsi-deild karla í kvöld.

Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  1 Grindavík

Sigurmark Grindvíkinga kom á 84. mínútu og það miðjumaðurinn Sam Hewson sem gerði það.

„Fjölnismenn voru mjög vel skipulagðir og voru búnir að skoða okkur vel. Þeir lokuðu helstu sendingaleiðum okkar. Við vorum stálheppnir tvisvar að fá ekki á okkar mark."

„Heppnin er að einhverju leyti búin að vera í liði með okkur en svo má líka velta því fyrir sér hvort við séum að hlaupa betur í gegnum leikina en andstæðingurinn. Þetta er barátta upp á líf og dauða."

Grindavík missti Andra Rúnar Bjarnason í vetur. Grindvíkingar eru ekki að skora mikið en þeir eru ekki heldur að fá mörg mörk á sig.

„1-0 sigrar telja jafnmikið. Við töluðum um það fyrir mót að fækka miðjum sem við þurfum að taka. Það hefur gengið mjög vel hingað til og ef við höldum þessum takti áfram erum við í fínum málum."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner