Delap nálgast Man Utd - Rift við Laporte - Arsenal og Liverpool berjast um Huijsen
   sun 01. september 2024 18:05
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: Gríðarlega mikilvægur sigur Tindastóls
Kvenaboltinn
Tindastóll vann baráttusigur gegn Keflavík
Tindastóll vann baráttusigur gegn Keflavík
Mynd: Sigurður Ingi Pálsson
Tindastóll 2 - 1 Keflavík
1-0 Jordyn Rhodes ('27 )
1-1 Simona Rebekka Meijer ('42 )
2-1 Aldís María Jóhannsdóttir ('77 )
Lestu um leikinn

Tindastóll vann lífsnauðynslegan leik í fallbaráttunni í Bestu deild kvenna í dag er liðið lagði Keflavík að velli, 2-1, á Sauðárkróksvellinum á Sauðárkróki.

Jordyn Rhodes kom Stólunum í 1-0 á 27. mínútu. Birgitta Rún Finnbogadóttir komst inn fyrir, lagði boltann út í teiginn á Jordyn sem setti hann í netið.

Keflavík svaraði fyrir sig undir lok hálfleiksins. Simona Rebekka Meijer fékk boltann upp úr engu í teignum, kom honum yfir Monicu Wilhelm í markinu og inn.

Þrettán mínútum fyrir leikslok skoruðu Stólarnir sigurmarkið og var þar að verki Aldís María Jóhannsdóttir. Jordyn átti skot sem Vera Varis varði út á Aldísi og var eftirleikurinn auðveldur.

Lokatölur 2-1 á Króknum. Tindastóll er með 16 stig í öðru sæti fallriðilsins, sex stigum fyrir ofan Fylki og Keflavík.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner