Stjórnendur og þjálfarateymi FC Bayern eru vongóðir um að markvörðurinn þaulreyndi Manuel Neuer samþykki að taka annað ár með liðinu.
Bayern hefur verið í leit að arftaka fyrir Neuer sem er orðinn 40 ára gamall en engum hefur tekist að velta honum úr sessi á milli stanga stórveldisins hingað til.
Núverandi samningur Neuer rennur út í sumar og er Bayern búið að bjóða markverðinum eins árs framlengingu til sumarsins 2027.
Þýskalandsmeistararnir eru að bíða eftir svari frá Neuer og eru vongóðir um að hann muni samþykkja annað ár.



