Crystal Palace er í frábærri stöðu í Sambandsdeildinni eftir að hafa lagt Shakhtar Donetsk að velli í kvöld. Ismaila Sarr skoraði fyrsta mark leiksins þegar hann slapp í gegn eftir 21 sekúndu.
Jean-Philippe Mateta átti góða stoðsendingu innfyrir vörnina eftir að Palace hafði haft betur í smá skallatennis skammt utan vítateigs Shakhtar.
Heimamenn héldu boltanum vel en náðu ekki að skapa mikið gegn skipulögðum gestum frá Englandi svo staðan var 0-1 í leikhlé. Í síðari hálfleiknum hélt leikurinn áfram í svipuðu fari þar sem lærlingar Oliver Glasner nýttu færin sín til hins ítrasta.
Í upphafi síðari hálfleiks jafnaði Oleg Ocheretko metin eftir hornspyrnu en Daichi Kamada svaraði fyrir gestina ellefu mínútum síðar. Boltinn barst til Kamada eftir langt innkast og tókst honum að klobba markvörð Shakhtar með skoti frá vítapunktinum.
Það var svo á 84. mínútu sem Jörgen Strand Larsen innsiglaði frábæran sigur Palace eftir skyndisókn. Larsen gerði vel að halda yfirvegun með nokkra varnarmenn í kringum sig, hann plataði markvörðinn og skoraði örugglega. Lokatölur 1-3.
Í hinum undanúrslitaleiknum hafði Rayo Vallecano betur gegn Strasbourg. Staðan var markalaus eftir afar bragðdaufan fyrri hálfleik en heimamenn skiptu um gír í seinni hálfleik.
Alemao skoraði með góðum skalla eftir hornspyrnu snemma í síðari hálfleik og lágu heimamenn á andstæðingum sínum frá Frakklandi.
Rayo fékk færi eftir færi en tókst einhvern veginn ekki að bæta marki við leikinn. Gestirnir frá Strasbourg sáu ekki til sólar og voru stálheppnir að sleppa með 1-0 tap. Belgíski markvörðurinn Mike Penders, sem leikur hjá Strasbourg á láni frá Chelsea, var besti leikmaður vallarins.
Shakhtar Donetsk 1 - 3 Crystal Palace
0-1 Ismaila Sarr ('1 )
1-1 Oleg Ocheretko ('47 )
1-2 Daichi Kamada ('58 )
1-3 Jorgen Strand Larsen ('84 )
Rayo Vallecano 1 - 0 Strasbourg
1-0 Alemao ('54 )



